Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Ekki það...

...að ég ætli að jagast eitthvað sérstaklega í KR-ingum.  Þeir virðast eiga nóg með sitt þessa dagana.  Óli Karna bað okkur um að íslenski boltinn yrði lítið ræddur hér innan veggja fyrirtækisins þar til KR hefði fagnað sigri.  Við sjáum fram á að geta lítið rætt þetta fyrr en fyrsta deildin rúllar af stað...næsta sumar.

Það sem vakti kátínu mína í dag var forsíða íþróttablaðs Morgunblaðsins.  Stundum raðast hlutirnir svo einkennilega saman.

Picture 2

 

 

 

 

 

 

 


Fyrirsögnin á viðtalinu á svo ágætlega við myndina og myndatextann.

Myndatextinn er eitthvað á þá leið að KR-ingurinn Grétar Ólafur Hjartarson komist lítt áleiðis gegn Víkingunum Grétari Sigfinni Sigurðsson, Jökli Elísabetarsyni og Vali Úlfarssyni.

Glimrandi gott...gallinn er bara sá að Grétar Ólafur og Grétar Sigfinnur eru hvergi sjáanlegir á myndinni.

Picture 3

 

 

 

Fyrirsögnin reddar þessu.

 

Ég skemmti mér líka dável yfir nokkrum hendingum sem hermt er að ættaðar séu úr bandarískum réttarsölum. 

 

Q: All your responses must be oral, OK? What school did you go to?
A: Oral.

-----

Q: Do you recall the time that you examined the body?
A: The autopsy started around 8:30 p.m.
Q: And Mr. Dennington was dead at the time?
A: No, he was sitting on the table wondering why I was doing an autopsy.

-----

Q: Doctor, before you performed the autopsy, did you check for a pulse?
A: No.
Q: Did you check for blood pressure?
A: No.
Q: Did you check for breathing?
A: No.
Q: So, then it is possible that the patient was alive when you began the autopsy?
A: No.
Q: How can you be so sure, Doctor?
A: Because his brain was sitting on my desk in a jar.
Q: But could the patient have still been alive nevertheless?
A: It is possible that he could have been alive and practicing law somewhere.


Krosstré

Bjarni Fel sagði í útvarpi allra landsmanna í kvöld að það væri orðið tímabært að heyra í Hrafnkatli Kristjánssyni.

Hrafnketill vildi lítið tjá sig um málið.


Ég er sigldur!

Það gefur á bátinn við Grænland
og gustar um sigluna kalt,
en togarasjómanni tamast það er
að tala sem minnst um það allt.
En fugli, sem flýgur í austur,
er fylgt yfir hafið með þrá.
Og vestfirskur jökull, sem heilsar við Horn
í hilling með sólroðna brá.
Segir velkominn heim, segir velkominn heim
þau verma hin þögulu orð.
Sértu velkominn heim, yfir hafð og heim,
þá er hlegið við störfin um borð.

En geigþungt er brimið við Grænland
og gista það kýs ei neinn.
Hvern varðar um draum þess og vonir og þrár,
sem vakir þar hljóður og einn?
En handan við kólguna kalda
býr kona, sem fagnar í nótt
og raular við bláeygan, sofandi son
og systur hans þaggandi hljótt;
Sértu velkominn heim, sértu velkominn heim.
Að vestan er siglt gegnum ís.
Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim
og Hornbjarg úr djúpinu rís.
                                              (Kristján frá Djúpalæk)

Ég sönglaði þetta einn og með sjálfum mér allan miðvikudaginn.  Textann var ég reyndar ekki með alveg á kristaltæru, en innihaldið og tilfinningin komust til skila.

Mynd052    Mynd053   

Mynd054    Mynd056   

Mynd059    Mynd060

Ég eyddi deginum um borð í hinni sögufrægu Aðalbjörgu RE.  Vinnutengt.  Við Hreinn ljósmyndari vorum mættir til Þorlákshafnar klukkan fjögur...árdegis.  Þetta var langur dagur, en afskaplega ánægjulegur.  Þetta var fyrsta reynslan af snurvoðarveiðum, alltaf lærir maður eitthvað nýtt.  Hrikalega skemmtilegt að eyða deginum innan um sjómenn, þeir segja hlutina bara eins og þeir eru.  Annar okkar var sjóveikur meira og minna allan tímann.  Hinn var hress.  Rifjaðir voru upp gamlir taktar. 
Það var eftirminnilegt að horfa á úrslitaleika Meistaradeildarinnar einhvers staðar á Selvognum.  Móttökuskilyrðin voru reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir, en við tókum stímið heim svona um það bil sem flautað var til síðari hálfleiks.  Lokamínútunum og bikarlyftingunni náðum við nokkurn veginn snjólausum.
Gaman að því.

Erlingur er að vakna til lífsins.  KA-menn allra landa sameinist!  Áhugasamir geta sent línu (skráningu) á netfangið kaleikur@gmail.com


Nanið...

Ég nenni ekki að tjá mig um pólitiskar væringar.  Það er ákveðið ferli komið af stað og hluti mengisins fer í mínar fínustu.

Það var hálf undarlegt að kveðja enska boltann um síðustu helgi.  Kveðjuathöfnin var óþægilega látlaus og lítilfjörleg.  Ég á nú reyndar ekki von á því að þessi sambandsslit hafi teljandi áhrif á geðheilsu og almenn gleðilæti.  Það er samt svolítið skrítið að ljúka tíu ára sambandi, sem í flestum tilfellum var skemmtilegt og gefandi en átti það líka til að vera þreytandi og slítandi, svona bara eins og að flokka sokka á fögru síðsumarkvöldi. 
Mér var svo virkilega brugðið þegar Bjarni Fel lauk keppni í Ensku mörkunum..."Bjarni Fel þakkar tæplega fjögurra áratuga samfylgd í enska boltanum".  Ég fékk kökk í hálsinn og barðist við táraflaum.  Ég lifi í þeirri trú að Nautið beri gæfu til að munstra forvera sinn í bakvarðarstöðunni hjá vesturbæjarstórveldinu í gott djobb, þótt ekki væri nema hlutastarf.  Þetta er mál sem snertir landsmenn alla.
Nú er náttúrulega komin upp sú skemmtilega staða að ég get farið að fella dóma um leiklýsingar og aðrar leikfimisæfingar íþróttafréttamanna sem aldrei fyrr.  Ég á jafnvel von á því að ég muni nýta mér þetta nýtilkomna "frelsi" á komandi vikum.

Nanið.  Ég er búinn að þurfa að lifa við það undanfarna daga að detta í hlátursköst upp úr þurru, eða því sem næst, og stundum við frekar óviðeigandi aðstæður.  Þetta er allt Ingvari Valgeirs að kenna.  Hann birti uppskrift á síðunni sinni á dögunum, hvar nan-brauð kemur við sögu.  Nan-brauðið á auðvitað að hita í ofni og niðurlag uppskriftarinnar er þetta:

Ef ofninn kallar með rödd Eyþórs Arnalds ofsahátt "ég brenni nan í mér" er nanbrauðið rúmlega tilbúið.

Ég þjáist enn af ótímabærum hláturrokum.


Er bara...

...einn auglýsingagerðarmaður á Íslandi?  Þessi sem gerir sjónvarpsauglýsingar flestra stjórnmálaflokkanna og lætur leiðtogana tala við ímyndaða vininn minn sem situr svo oft við hliðina á mér?  Nei, líklega eru þeir tveir.  Hinn hafði vit á því að fá Bjarna garðyrkjustrump og poppspekúlant til að leika í sinni auglýsingu og það á eftir tryggja öruggan og eftirminnilegan kosningasigur.  Ef Bjarni fengi að ráða myndu Pet Shop Boys spila á kosningavökunni.  Ef Bjarni fengi að ráða stæði kosningavakan þá yfir í heila öld.

Ég veit ekkert af hverju, en þessar auglýsingagerðarpælingar leiddu hugann allt í einu að pylsugerðarmanninum sem einokar markaðinn í ónefndu bæjarfélagi sem gaman er að heimsækja við hin ýmsu tækifæri.  Hann hlýtur eiginlega að gera það ansi gott.  Engin samkeppni, engar áhyggjur af markaðsstöðu, ekkert vesen.  Viðskiptavinirnir eru svo himinlifandi með þennan ráðahag að þeir hrópa húrra fyrir manninum í tíma og ótíma.  Nóta bene...þetta er ekki pólitísk pæling!

 

Þetta er ein sú almesta snilld sem sést hefur í netheimum.   Tæplega hundrað þúsund kall...fyrir nákvæmlega ekki neitt.  Bjóðendur eru hugsanlega týpurnar sem slökkva á tölvunni sinni þegar þeir ramba inn á síðu eins og þessa.  

 

Mér barst bréf.  Spurt er um fimm bestu rokkslagara Íslandssögunnar.  Tillögur?


Hvaða...

...höfuðsnillingur er hugsuðurinn á bak við Meistaradeildarleik Vodafone?  Það er búið að hamra á þessum blessaða sms-leik í gærkvöldi og dag með alls kyns auglýsingum og athyglishvötum, enda vinningurinn sérlega glæsilegur, en leikurinn er samt algjörlega út úr kú.  Chelsea er úr leik, en svarmöguleikarnir við spurningunni "Hvaða lið keppa til úrslita í UEFA Champions League" eru samt...A - Manchester United / Chelsea og  C - AC Milan / Chelsea.
Jájá...þetta er smámunasemi...en samt.  Annað hvort átti að ljúka sms-leiknum áður en flautað var leiks Liverpool og Chelsea í gærkvöldi, eða gera viðeigandi breytingar í kjölfar hans.

Ég er búinn að leita dyrum og dyngjum á alnetinu í dag að auglýsingu þar sem harmonikkuleikarar eru hvattir til að smella nikkunni á öxlina og skunda til Íslands.  "Góðir tekjumöguleikar, vinalegt umhverfi, óútreiknanlegt veður.  Húfa og vettlingar við hæfi, en ekki skilyrði".  Finn auglýsinguna ekki, þannig að ótrúleg fjölgun harmonikkuleikara er enn hulin ráðgáta.  Þessi óvænta uppspretta fingrafimra og tónvissra gæðapilta hlýtur að setja ný viðmið fyrir önnur þjóðlönd og hreinlega met af einhverju tagi.
Ég hef rekist á einn og einn síðustu daga, en ökuferð niður Laugaveginn í gær toppaði allt.  8 harmonikkuleikarar fögnuðu baráttudegi alþýðunnar, sex þeirra í vel æfðum og hljómfögrum dúettum og tveir voru frekir til einleiks og fengu því engan til að spila með sér.  Þeir virkuðu samt sáttir og glaðir.  Margir þeirra áttu fínar húfur.

Mynd048

Ég áttaði mig ekki á því að taka mynd fyrr en ég sá glitta í þann áttunda.  Hann er þarna og ef myndin prentast vel má þekkja lagið sem hann leikur.


Plata ársins?

Það er vel hugsanlegt að plata ársins á Íslandi hafi komið út í gær.  Grínlaust. 

bsig

Þetta er platan hans Bjarka Sig, sem hingað til hefur birst landsmönnum í hlutverki handboltamanns í fremstu röð.  Bjarki hefur stundum verið skilgreindur sem "bróðir Lalla og Dags", en líklega verður þetta til þess að fjármálamógúllinn í Lúxemborg og handboltahetjan í Austurríki og verðandi framkvæmdastjóri Vals verða héðan í frá skilgreindir sem "bræður Bjarka"!

Þetta er undarlega heillandi og grípandi plata og kemur á óvart við hverja hlustun.  Ég vissi svo sem að Bjarki væri að gutla á gítarinn sinn, en var algjörlega grunlaus um þá hæfileika sem drengurinn býr yfir.  Hann teygir sig, á afar smekklegan hátt, í ýmsar áttir og það má með góðum vilja heyra nokkra áhrifavalda, en allt er þetta þó þegar allt kemur til alls...b.sig.
Ef einhver ætlar að hirða af honum heiðursútnefninguna fyrir plötu ársins er þeim hinum sama vissara að girða sig í brók.  Hugsanlega að fá Sir Paul McCartney til að leggja eitthvað af mörkum.

Eins og tónlistarmanna er siður er b.sig búinn að opna heimasíðu.  Síðan lítur dúndrandi vel út, enda á hún ættir að rekja til Dalvíkur!  Langsótt?  Nee.  Maðurinn á bak við fyrirtækið sem hannar síðuna er Jónas frændi minn.  Heimurinn er lítill og undarlegur.
Það eina sem vantar inn á síðuna er hlustunarmöguleiki, en það skrifast væntanlega á tímaþröng frekar en yfirsjón.  Ég tók mér það bessaleyfi að smella tveimur lögum inn á spilarann hérna til hliðar.  Höfundarréttarkærufrestur rann hvort eð er út á hádegi í dag.

Ég leitaði að gamni að myndum sem tengjast b.sig á veraldarvefnum og sá þá mér til mikillar gleði að í borginni sem aldrei sefur, Nýju Jórvík, hefur hópur hjólreiðamanna komið saman til að fagna útkomu plötunnar.  Þetta eru væntanlega fyrstu merkin landvinninga listamannsins.

bsig-party

Kaupa kvikindið...og ekkert rugl!  Eymundsson og/eða Penninn.  Það er langflottast að kaupa sitt hvort eintakið í sitt hvorri búðinni.


Höfundur

Snorri Sturluson
Snorri Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband