Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Speglar og falskur botn!

Ég hnaut um þessa forsíðufrétt um helgina.  Fyrirsögnin ein og sér fyllti mig gleði og trú á mannkynið.  Fegurðin og manngæskan drupu af þessu óvænta útspili Marels og ég þurfti ekki að lesa fréttina til enda, fyrstu átta orðin veittu mér nægan innblástur.

Picture 2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í gærkvöldi lagðist ég á koddann minn mjúka, lét hugann reika og reyndi að komast að því hvernig best væri að koma óvæntum kaupauka í nyt.  Ég sá það jafnvel fyrir mér að geta keypti Mýrina á dvd-diski, en hingað til hef ég veigrað mér við því.  Í auglýsingunni er nefnilega sagt að þetta sé stærsta mynd íslenskrar kvikmyndasögu og ég hafði/hef efasemdir um að hún rúmist innan um aðrar myndir heimilsins.  Óvæntur auður sló á þessar áhyggjur.  Ég hlakkaði líka mikið til að fá að vita hver launakjör mín hjá Marel væru, hvernig tilvera mín ein og sér væri verðmetin í evrum, og komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri besta fyrirtæki í heimi.  Ég æfði mig í að umreikna úr evrum í krónur.

Ég hringdi í Marel í morgun til að koma bankaupplýsingum, taumlausri aðdáun og þakklæti á framfæri.  Viðbrögðin ollu vonbrigðum og jafnvel svolitlum sárindum.  Líklega hefði verið hollara að hemja gleðina og lesa aðeins lengra.  Ég fer samt ekkert ofan af því að Marel er flott fyrirtæki.

Einsmellur dagsins er Now That We Found Love með Heavy D & The Boyz.


Í þá gömlu góðu daga...

Þetta skrifast alfarið á Ingvar.  Það var hann sem hóf þessar einsmellungsvangaveltur! 
Þar sem ég ligg heima og vinn að því af heilindum að losa mig við norskættað flensuskot kann að vera að ég hafi of mikinn tíma til að leita uppi dásamlegar fortíðarperlur.  Hér eru þrjár slíkar.

Pop Muzik með M...sem í rauninni mætti skilgreina sem einsmannshljómsveitina Robin Scott.  Reyndar hafði hann sér til fulltingis náunga sem heitir Wally Badarou og er einn mesti hljóðgervlaspekingur samtímans, var kallaður fimmti meðlimur Level 42 og hefur unnið með ekki ómerkara fólki en Joe Cocker, Mick Jagger, Talking Heads, Foreigner, Power Station og Marianne Faithful...svona til að nefna nokkur dæmi.  Myndbandið við lagið þótti framúrstefnulegt og flott, en áhugaverðustu kaflar þess eru þrjú örstutt myndbrot sem líklega hafa farið framhjá flestum.  Þessi stuttu brot fela í sér gagnrýni, boðskap og spádóm sem átti heldur betur eftir að rætast.  Í myndbandinu dansa og syngja föngulegar meyjar með og í kringum Scott og látið er í veðri vaka að þetta séu bakraddasöngkonurnar.  Þrisvar bregður svo fyrir ósköp "venjulegri" konu sem syngur bakraddalínurnar og þar með er það í rauninni opinberað að myndbandið er að stórum hluta speglar og falskur botn.  Scott var að gagnrýna sýndarmennskuna og vitleysisganginn í tónlistargeiranum og nokkrum árum síðar fengu svo "sveitir" á borð við Boney M og Milli Vanilli skell á beran bossann...fyrir það einmitt að setja hina eiginlegu söngvara aftur fyrir tjaldið og láta "huggulegra" fólk um það að afla vinsælda.

Hér eru svo tvö lög hljómsveitar sem átti tiltölulega stutta lífdaga; þessi lög náðu skammvinnum en ansi einbeittum vinsældum.  Svo mikil var pressan að spila þetta í unglingaútvarpsþætti á RÚVAK síðla árs 1986 að ég greip til þess ráðs að fá plötuna lánaða í H-100.  Plötuna...ekki diskinn.
Hollywood Beyond átti það sameiginlegt með M að vera í rauninni einsmannshljómsveit, en hvað varð um þennan ágæta mann veit ég ekki.  Þess ber að geta að síðara lagið heitir No More Tears...ekki No More...og snubbóttur endir er ekki mér að kenna. 
Það má alveg skemmta sér yfir þessu.



Einsmellungar...

Hið skarpgreinda gítargoð er að velta fyrir sér einsmellungum, one hit wonders, í einni af fjölmörgum könnunarferðum sínum um margbreytileg viðfangsefni mannshugans.  
Þessar pælingar rifjuðu upp löngu horfna tóna, sem í sína tíð þóttu til eftirbreytni og fóru langleiðina með að draga þaulsetna ofurtöffara út á dansgólfið í Dynheimum.  Ó, hve lífið var einfalt í þá daga.

Mér þótti svo mikið til þess koma að finna þessa tímalausu snilld á hinu alltumlykjandi alneti að ég ákvað að setja þessi tvö myndbönd hér inn, bæði til gagns en einnig nokkurs gamans.

 


Bikarinn til Bergen!

Hið frækna knattspyrnulið Brann frá Bergen, hvar þrír vörpulegir knattspyrnumenn frá landinu bláa eru í lykilhlutverkum, er um það bil að tryggja sér norska meistaratitilinn í fyrsta sinn í 44 ár.  Bærinn er algjörlega knattspyrnuóður, fólk gisti fyrir utan verslunarkjarnann í miðborginni í miðri viku til að tryggja sér miða á síðasta heimaleikinn og Brann-búðin í kjarnanum minnir á brauðbúð í A-Evrópu á tímum kalda stríðsins.  Þrátt fyrir vöruskort tókst mér að finna þar fína Brann-peysu, sem ég keypti til að vega upp á móti vonbrigðunum sem eigið landslið veldur.  Gott ef ég er ekki bara orðinn nokkuð spenntur fyrir leik Norðmanna og Tyrkja, þar sem Hareide-gumar geta tryggt sér sæti á EM.  Reiknað er með að rúmlega 100 þúsund sálir heiðri miðborg Bergen með nærveru sinni á laugardag og búið er að brugga sérstakan meistarabjór.  Í morgun birtist í Bergensavisen viðtal við mann og konu sem fæddust daginn eftir að Brann vann meistaratitilinn síðast, 14.október 1963.  Líklega munu þó ekki birtast fleiri viðtöl við Dag Fölling og Randi Merete Ramberg á næstunni, þau muna nefnilega ekkert eftir stemmningunni síðast þegar Brann varð meistari.

Fyrir utan hótelið okkar, sem er haganlega staðsett í miðri miðborginni, er búið að setja upp einhvers konar bás...fyrir æfingahjól.  Þar koma Brann-istar saman í smærri hópum og "hjóla gullið heim", eins og þeir kalla það.  Það á s.s. að halda snúningi á hjólunum þar til titilinn er í höfn.  Þótt flestir reikni með því að titlunum verði landað á laugardag er möguleiki á að það dragist aðeins á langinn og þá hlýtur þetta að verða einhvers konar álfumet í kaloríubrennslu.

Mynd081

Það sem vakti athygli skarpgreinda Íslendinga var að maðurinn á auglýsingaspjaldinu sem prýðir þennan ágæta bás er í World Class-bol.  Ekki nóg með það...heldur eru hér uppi vangaveltur um að umræddur maður sé bakari og hafi á einhverjum tímapunkti starfað á Húsavík.  Nei, það er ekki verið að rugla honum saman við Andra Sigþórs.

Mynd080

Amy Winehouse gistir líka á þessu hóteli.  Einhverjir þeirra sem ég hef verið að dedúast með í vikunni urðu vitni að handtöku hennar í nótt.  Þeim fannst frekar lítið til söngdívunnar koma.


Íslenska útrásin...

...tekur á sig ýmsar myndir.  Ekki hefði mig grunað að ég myndi rekast á íslenska gæðaframleiðslu í hillu harla látlausrar matvöruverslunar í kjallara verslunarmiðstöðvar í útlandinu.

Mynd063

Mér varð svo mikið um að sjá þetta að ég fór að snökta og þylja ættjarðarljóð inni í miðri nýlenduverslun.  Það vakti vissulega furðu og undran, en mér tókst að þerra tárin og ræskja mig karlmannlega þegar ég sá verslunarstjórann nálgast.  Ég keypti fullt af hlutum sem ég hafði enga þörf fyrir.

Þetta er útsýnið úr herbergisglugganum mínum.  Hótelið í fínu lagi.  Ef einhver þekkir staðinn ber það vott um greind og gáfur.

Mynd062


Ný borgarstjórn

Ég hef fátt um málið að segja...annað en þetta.  Þetta er úr smiðju Magnúsar Þórs Jónssonar.

Nógu er jú af að taka
tárunum rignir
og tilgangs- og marklausum farvegum
streyma þau í


Það borgar sig ekki einu sinni að yfirgefa sveitarfélagið. Maður fær ekki raunvirði fyrir fasteignina eftir þessi ósköp.


Frændur í fjöru

Uppfræðsla afkomendanna.  Synirnir voru ekkert sérlega hrifnir af stuttri kennslustund í sjávarföllum, mikilvægi hafsins og lífríkinu í fjörunni.  Hellisgötu-fjaran í Hafnarfirði er fjarri því að geta talist víðfeðm og hún er aukinheldur sandskroppin.  Staðurinn var þó valinn af sérstakri natni og þar var stærð drengjanna höfð til hliðsjónar.  Ef tekið hefði verið tillit til þess hvernig þeir upplifa sig sjálfir hefðum við þurft að keyra austur á Skeiðarársand.
Þeir voru ekkert sérlega hrifnir af sjónum.  Það þýddi lítið að reyna að benda þeim á að þarna ættu fiskarnir heima.  Þeim er ekkert um fiska gefið.  Tumi var á heimspekilegum nótum og skoðaði sig um á meðan Númi reyndi að murka líftóruna úr hamborgarabréfi og undirstrikaði líkamlega yfirburði sína með því að urra og gelta á allt sem hreyfðist, lífs og liðið.

Mynd059   Mynd060

Íþróttafrétt helgarinnar var lesin úr þularstofu í Efstaleiti á miðnætti á laugardag.  Í upphafi fréttarinnar sagði, lauslega þýtt og endursagt, að FH hefði tryggt sér bikarmeistaratitlinn í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögu félagins með því að leggja Fjölni að velli, 2-0, í úrslitaleik.  Matthías Guðmundsson kom FH yfir, en Gunnar Már Guðmundsson jafnaði metin fyrir HK!  Þulur las þetta athugasemdalaust, rétt eins og textinn væri úr hinni helgu bók.  Merkilegt.


Það er mynd...

...af kvikindinu uppi á vegg í ljósvakamusterinu í Efstaleiti.  Hún er reyndar ekki á neitt sérlega áberandi stað, sem vekur furðu og undrun.

Mynd056

Þetta er mynd af mynd, sem er nýmæli.  Upphaflega myndin er tekin fyrir fleiri árum en hollt er að upp að rifja, líklega um það leyti sem maðurinn hringdi og bað um Starway To Heaven með What´s Happening.  Á þessum tíma var tilveran tiltölulega einföld og það þótti bara fínt að vera í vesti!
Annars er alltaf jafn heimilislegt að sitja í turninum á laugardagskveldi, spila það sem hugurinn girnist og þiggja fyrir það þóknun.  Viltu óskalag?

Má ég annars spyrja...hvernig stendur á því að í sjónvarpsþáttum og bíómyndum sem eiga að gerast fyrir tvöþúsund árum eða svo, t.d Tudors og Rome, eru hárgreiðslur og klippingar nýmóðins?


Hæfileikar!

Þetta er nánast kjánalegt.  Maður freistast alltaf til að horfa á dúkkuna.

Þetta ku vera sigurvegari annarrar umferðar þessarar annars ágætu hæfileikakeppni.  Þar með er búið að koma því þannig fyrir að það þarf ekki að eyða annars dýrmætum tíma í að fylgjast með ósköpunum þegar þau verða tekin til sýningar hér heima.


Höfundur

Snorri Sturluson
Snorri Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband