Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Hvað ungur nemur...

Bjarmi frændi fagnaði fyrstu heimsókn sinni til höfuðborgarinnar með því að splæsa í sólgleraugu.  Hann varð tveggja mánaða í miðri viku, en hagar sér að mörgu leyti eins og hann hafi orðið tveggja ára.  Genin láta ekki að sér hæða.

Mynd0067

Talandi um gen...ég sannfærðist um það eftir að hafa hitt Sölku Sigmarsdóttur að Hr. Stefánsson getur lokað sjoppunni.  Það þarf ekkert að rannsaka þetta frekar. 

Meðmæli vikunnar fær tónlistar- og dvd-markaðurinn í Laugardalshöll.  Þegar maður kemst yfir sjokkið yfir staðsetningunni missir maður ráð og rænu svamlandi um í allsnægtarbrunni afþreyingarefnis.  Það skemmir ekki fyrir að Geiri Geira og Brói eru aðalkallarnir á svæðinu.   Ég ætlaði nú bara að skoða...en keypti Borat, Leon, Capote og Austin Powers - International Man of Mystery...á innan við þúsundkall stykkið.  Á leiðinni út rak ég augun í dágott Kiss-safn.  Keypti sjö fyrstu plöturnar.  Kiss er snilld. 

Mótmæli vikunnar beinast hins vegar gegn ónefndri sjoppu, sem telur þetta auka áhuga almennings á að gæða sér á grísasamlokum...

Mynd049

Að lokum...það er sérhverju mannsbarni hollt að fylgjast vel með blogginu hans Ívars Páls.  Umræðurnar sem spunnist hafa um nýjustu færsluna eru svo...hmmm...áhugaverðar...að m.a.s. starfsfólk ríkisstofnana hlýtur að rifja upp löngu týnt bros.


Afmælisbarn dagsins...og brostnar vonir

Í dag eru rétt 11 ár síðan ég upplifði þakklæti, vanmátt gagnvart almættinu og öðlaðist meiri skilning á tilgangi lífsins...allt í senn. 

Þessi fagra snót, Inga Rún Snorradóttir, á 11 ára afmæli í dag...

DSC00098b


Eftir að Þorgils Sniglagítarleikari tók Santana-einleik í besta útvarpsþætti í heimi fyrir rúmri viku fór ég að gera mér grein fyrir því að mér er ætlað eitthvað annað en að sigra heiminn með gígjuslætti.  Trommaraferilinn spannar eitt heilt lag með hljómsveitinni Gengið ilsig (sem reyndar dugði til ágætra afreka á Viðarstauk!) og Þórgunnur píanókennari fagnaði brotthvarfi mínu úr tónlistarnámi fyrir margt löngu með skemmtisiglingu um Karíbahafið.
Mér datt í hug að slá þessu bara öllu saman, gerast einsmanns hljómsveit.  Án hljóðfæra.  Það hefur eiginlega enginn hér á landi náð merkilegum árangri í því sem heitir á máli tónspakra fagmanna beatbox.  Ég ákvað að leita mér upplýsinga og jafnvel leiðbeininga á alnetinu, en fékk þá staðfestingu á því að ég á að gera eitthvað allt annað.

Þessi ágæti maður hlýtur að vera besti taktkassi í heimi.  Hann heitir Joseph er franskur.  Hann býr yfir náðargáfu.


Þetta fékk ég svo sent í tölvupósti.  Ég á góða að.  Þeir senda mér skemmtilega tölvupósta.

These are real notes left for a Dunedin (New Zealand) milkman for many years:

Just had a baby, please leave another.

Please cancel one litre after the day after tomorrow.

Milkman, please close the gate behind you because the birds keep pecking off the tops of the milk.

No milk, please do not leave milk at no. 14 as he is dead until further notice.

Please leave no milk today.  When I say today, I mean tomorrow, for I wrote this yesterday.

Leave one extra litre.  If this note blows away, please knock.

Sorry not to have paid your bill, but my wife had a baby and I have been carrying it around in my pocket all week.

From now on please leave two litres every other day and one litre on the days in between, except Wednesdays and Sundays when I don´t want any milk.

Money on the table - wife in bed - please help yourself.


Ég lagði niður störf í dag!

Það var af illri nauðsyn.  Ég vonast til að geta tekið upp þráðinn að nýju á morgun.

Eftir að hafa lesið tölvupóst sem mér barst frá ónefndum aðila hef ég ekki getað einbeitt mér.  Innihaldið var þetta:

A very loud, unattractive, mean-acting woman walked into Wal-Mart with her two kids, yelling obscenities at them all the way through the entrance.

The Wal-Mart Greeter said pleasently: "Good morning and welcome to Wal-Mart.  Nice children you have there.  Are they twins?"

The ugly woman stopped yelling long enough to say, "Hell no, they ain´t."

"The oldest one´s 9 and the other one´s 7.  Why the hell would you think they´re twins?  Are you blind, or just stupid?"

"I´m neither blind nor stupid, Ma´am", replied the greeter. "I just couldn´t believe you got laid twice.  Have a good day and thank you for shopping at Wal-Mart."


Höddi klappaði á Old Trafford!

Höddi Magg gladdi mig mjög með vel ígrundaðri yfirlýsingu sem hann kastaði fram í miðjum leik Fram og Vals í Laugardalnum.  "Heldurðu að ég hafi ekki staðið upp á klappað á Old Trafford!!!"  Fyrirfram hefði ég talið þetta álíka líklegt og að ég borgaði mig inn á leik með Þór.  Hörður er nefnilega týpan sem tuðar nákvæmlega ekkert yfir matvæla- og/eða bensínverði á Íslandi, veðrinu eða lélegri sjónvarpsdagskrá.  Hann tekur leikmannakaup og leikskipulag Liverpool hins vegar mjög alvarlega.  Svo alvarlega að það veldur stundum áhyggjum innan fjölskyldunnar og vinahópsins.  Þess vegna er merkilegt að hann standi upp á klappi á heimavelli erkifjendanna.  Reyndar er merkilegt að hann skuli heimsækja Old Trafford ótilneyddur.  Það voru reyndar ekki ómerkari menn en Phil Collins, Mike Rutherford og Tony Banks sem drógu hann þangað.  Genesis.  Þegar Höddi reyndi að segja mér frá tónleikaupplifuninni missti hann fljótlega þráðinn, varð dreyminn á svipinn og táraðist.  Hér er lítið sýnishorn.


Victoria Beckham hefur náð þeim merka áfanga að nafn hennar eitt og sér kallar fram neikvæð og óæskileg líkamleg viðbrögð.  Hvernig er hægt að vera svona...algjörlega úti að skíta?  Hún hefur m.a.s. haldið því fram, í fúlustu alvöru, að hún sé hæfileikarík tónlistarkona sem muni láta til sín taka þegar eiginmaðurinn hefur lagt skóna á hilluna.  Raunveruleikafirring í sinni tærustu mynd.

Um helgina reiddist ég í fyrsta sinn yfir bloggfærslu.  Ég gerði athugasemd við færsluna, en athugasemdin var fjarlægð skömmu síðar.  Þeir sem dóla sér í hópi vinsælustu Moggabloggara virðast sumir hverjir telja turn sinn svo háan að þeir þurfa ekki að taka mark á mjóróma almúganum.
Umrædd færsla var andlátstilkynning.  Þjóðþekktur einstaklingur féll frá um helgina og bloggari einn, sem virðist aðallega sækja vinsældir í að endursegja fréttir mbl.is á frekar undarlegan hátt, sá sig knúinn til að tilkynna andlátið í bloggheimum.  Mér fannst tímasetning bloggfærslunnar ósmekkleg, alvöru fréttamenn umgangast tíðindi sem þessi af ákveðinni virðingu og gefa aðstandendum viðeigandi svigrúm.  Ég er ekki að finna að því viðkomandi bloggari tjái sig eða votti virðingu sína.  Þetta snýst um tímasetningu og framsetningu.  Ætla má að athyglisþörf, hugsanlega ásókn í viðurkenningu og umtal, hafi hér ráðið för og mér blöskraði.
Þetta vekur mann til umhugsunar.  Bloggheimar eru orðnir stórir og áhrifamiklir, hægt er að reka þar fréttaþjónustu af nánast hvaða gerð sem er ef út í það er farið og hugsanlega sækja nokkrar vinsældir, en vandi fylgir vegsemd hverri.  Ég gæti tekið upp á því að bulla og steypa um þekkta og lítt þekkta þjóðfélagsþegna, jafnvel fremja mannorðsmorð á blogginu.  Ég gæti líka tekið upp á því að opinbera mismerkileg leyndarmál af öllum stærðum og gerðum.  Ég hef vissulega frelsi til þess.  Frelsið er yndislegt, svo vitnað sé í skáldið, en því fylgir líka ábyrgð.  Mikil ábyrgð.  Lykilorðin í þessu samhengi eru siðferði og tillitssemi.  Það sem skrifað er í bloggheimum er nefnilega í langflestum tilvikum aðgengilegt heimsbyggðinni allri. 
Það er stór munur á því að gera góðlátlegt grín, jafnvel lýsa skoðunum sínum á mönnum og málefnum, og birta andlátsfregnir.  Þar erum við komin yfir hina hárfínu línu.  Hvar sem hún svo liggur nákvæmlega.


Hress, hressari...

Númi litli er allur að koma til eftir spýjur og spítalavist.  Það er að koma í ljós að hann er svona ljómandi skemmtilegur karakter með ljónshjarta, ræðst á Labrador-hunda ef ekki vill betur.

 

Nei...þetta er ekki að breytast í hundablogg.


Þetta er versta...

...veffrétt í heimi!

----------------------------------------------------

Erlent | AFP | 12.7.2007 | 20:41

Einn hinna grunuðu sleppt úr haldi 

Lögreglan á Bretlandi leystu konu úr haldi, sem grunuð hafði verið um að taka þátt í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum og Glasgow, í dag. Marwa Asha var handtekinn ásamt eiginmanni sínum á M6 hraðbrautinni í Cheshire þann 30. júní síðastliðinn. Hún mun ekki verða ákærð.

Talsmaður Skotland Yard sagði að henni hafi verið sleppt í kvöld og hún muni ekki verða ákærð.

---------------------------------------------------
 
Hér eru engin brögð í tafli...þetta er fréttin eins og hún birtist á mbl.is. 
Sko.  Það hlýtur að vera hægt að finna sumarafleysingafólk, það á ekki bara við um vefmiðlana heldur öldur ljósvakans líka, sem skammlaust getur haldið því fram að íslenska sé móðurmál þess.  Ég geng út frá því sem vísu að "höfundur" þessa texta sé lausráðinn.  Jafnvel að frá og með kl. 20.42 þurfi viðkomandi að leita sér að vinnu.

Áskorun dagsins:  Hvað finnið þið margar villur í þessum magnaða fréttatexta?


Ekki er þó allt alslæmt.  Fregnir herma að Jóhann Hauksson, morgunhani á Útvarpi Sögu, hafi fyrir skemmstu tryggt sér Evrópumeistaratitilinn í spurningalengd í útvarpi.  Meðlimir í aðdáendaklúbbi útvarpsmannsins knáa í Saxlandi fögnuðu titlinum af mikilli ákefð, eins og meðfylgjandi fréttamynd ber með sér.

celebration


Númi kannar heiminn...


Hermt er...

...að fyrir margt löngu hafi ein frægasta og vinsælasta hljómsveit alheimsins haft í hyggju að skunda til lands elds og ísa til tónleikahalds.  Aðeins örfáir útvaldir vissu af þessum fyrirætlunum, rík áhersla var lögð á að enginn gaspraði tóma tjöru út í loftið og því voru þeir sem ráðnir voru til að undirbúa jarðveginn hér heima valdir af kostgæfni.  Þrátt fyrir að hafa staðist ströngustu próf og lofað öllu fögru missti einn vitringanna sannleikinn út úr sér kvöld eitt þegar óminnishegri sótti að honum.  Þeir sem til heyrðu urðu agndofa og allsgáðir á svipstundu, svo hissa reyndar að þeir náðu ekki að láta boðin ganga og sagan komst aldrei almennilega af stað.  Tónleikahaldarar (hugsanlegir og/eða væntanlegir) náðu að takmarka skaðann, sagan gekk reyndar manna á milli í nokkur ár en ávallt var henni tekið sem hverri annarri lygasögu.

Nú virðist hins vegar vera að koma í ljós að fótur var fyrir þessu öllu saman.  Sveitin víðfræga ku hafa verið að melta heimsókn á hjara veraldar og undirbúningsvinna var á veg komin.  Búið var að bjarga ýmsu smálegu og stærri verk voru í bígerð þegar sveitin leystist upp og allt var blásið af.  Lengi vel var ein lífseigasta flökkusagan í íslenska poppinu og rokkinu sú að málin hefðu verið komin svo langt að búið hefði verið að bóka og sérmerkja rútu.  Eða langferðabíl.  Nú er það loksins staðfest.

Við Steini fundum langferðabílinn, merktan og vænlegan til afreka, á ónefndum stað í höfuðborginni.  Reyndar var það Steini sem fann hann, ég tók bara myndina.

Mynd0135

Ef myndin prentast vel má sjá að punkterað er á vinstri hjólbarða að aftanverðu og í hliðarrúðu ökumanns glittir í tilkynningu frá hinu opinbera þess efnis að nærveru þessarar sjálfrennireiðar sé ekki óskað á götum þessa lands.  Líklega hefur biðin eftir Bítlunum gert út af við hann.

Númi er búinn að vera sloj og slappur í allan dag.  Hann fór tvisvar upp á dýraspítala, í síðara skiptið þurfti að kalla dýralækninn út.  Númi ældi og spjó, lá eins og slytti og fannst lítið til gamanmála og gígjusláttar koma.  Þessi átta hundruð gramma skrokkur fékk einar fimm sprautur í dag (það jafngildir fimmhundruð sprautum hjá upprétta manninum...og nóta bene...það er fíll sem heldur á sprautunni!).  Þegar komið var fram yfir miðnætti spratt hann hins vegar á fætur og datt í stuð. 
Myndband af stuðkallinum verður birt innan skamms.


Sturluson yngri...

...og íbúð! 

Bloggfríið átti að vera tíðindalítið og rólegt.  Margt fer öðruvísi en ætlað er.

Fyrir það fyrsta...var fjárfest í íbúð.  Flunkunýjum salarkynnum á glimrandi fínum stað í Breiðholtinu.  Ég var reyndar ekki á leið úr Hafnarfirði, en þetta var einfaldlega of gott til að sleppa því.  Ekki er loku fyrir það skotið að vinum og vandamönnum verði á komandi misserum boðið í snæðing og skoðunarferð.

Hér stendur Inga Rún fyrir utan slotið.  Myndin er tekin nokkrum andartökum eftir að hún hafði veitt samþykki sitt fyrir kaupunum.

IMG_0291 

Þessi ráðahagur kallar reyndar á drastiskar breytingar á persónulegum högum.  Í fyrsta sinn í tólf ár verður lögheimilið í höfuðborginni og nú þarf að fara að skoða hið pólitiska litróf frá öðru sjónarhorni.  Viðskiptabanki síðustu áratuga fékk líka baugfingurinn (nýtt trikk sem Habban hefur miklar mætur á!).  Þjónustan hjá Kaupþingi er hins vegar til fyrirmyndar í alla staði.

Í annan stað...fjölgun í fjölskyldunni.  Númi Snorrason er mættur til leiks.

IMG_0316b

Hann á reyndar ekki langt að sækja útlitið og greindina.  Númi er nefnilega frændi Tuma.  Þeir eru ágætir saman.

IMG_0308b

Það stóð ekki til að fjölga svona í fjölskyldunni...alveg strax.  Númi tók þetta hins vegar á svipuðum nótum og Tumi gerði á sínum tíma.  Hann valdi okkur eiginlega frekar en að við veldum hann.  Hann var sóttur daginn eftir.


Íbúðakaupunum hafa fylgt óteljandi verslunarferðir.  Það þarf að skoða hlutina vel, vega og meta.  Allt í einu eru viðmót og þjónustulund verslunarfólks farin að skipta mig meira máli en nokkru sinni.  Ég höndla það ekki að nýfermdur og frekar vitgrannur afgreiðslumaður reyni að sannfæra mig um það hvernig framtíð minni sé best borgið. 

Steini vinnufélagi, stórsnillingur og frændi, hefur einstakt lag á að draga fram það besta í fólki.  Fólk sem sinnir þjónustustörfum er þar engin undantekning.  Hann keypti sér t.d. nýtt sjónvarp fyrir tæpu ári, neyddist til að fara með það í viðgerð rétt um það bil sem Eiríkur gerði í brók í Finnlandi og þurfti að lokum að skipta tækinu út.  Þetta vafstur skilaði honum sex nýjum bíómyndum á dvd-diskum.  Það er afrek.
Steini sá auglýsingu frá Öryggismiðstöðinni í blöðunum um daginn, þar sem þess var getið að viðskiptavinir fengju tvo mánuði án endurgjalds.  Hann hringdi í téð fyrirtæki.  Samtalið var eitthvað á þessa leið...lauslega þýtt og endursagt:

Steini: Góðan dag, ég sá auglýsingu frá ykkur í blaðinu...tveir mánuðir frítt...leist svo ljómandi vel á þetta.
Þjónustufulltrúi: Já, þetta er gott tilboð.  Við erum að fá fín viðbrögð við auglýsingunni.
Já, veistu, ég er bara að hugsa um að taka þessu tilboði.
Já, alveg sjálfsagt.  Hvenær myndi henta þér að tæknimaður kæmi til þín til að setja búnaðinn upp.
Það er algjör óþarfi, ég er með heimavörn frá ykkur.
Þögn
Ha?  Ertu með heimavörn frá okkur? En...en...bíddu...
Já já, ég er með allt sem þarf.  Mig langar bara að fá tvo endurgjaldslausa mánuði, eins og auglýst var.
En...en...sko...það eru reyndar bara nýir viðskiptavinir sem fá fyrstu tvo mánuðina fría.
Nú jæja, þess er ekki getið í auglýsingunni.  Ertu alveg viss?
Já, ég er alveg viss um það.
Ja, ég vil nú eiginlega bara fá það sem auglýst er.  Það er ekki mitt mál hvernig þið orðið auglýsingarnar ykkar, það stóð ekkert um nýja viðskiptavini.
Nei, en það er nú samt þannig.  Það eru bara nýir viðskiptavinir sem fá tvo mánuði fría.
Hmmm...þú segir nokkuð.  Heyrðu, þá ætla ég að segja samningnum mínum upp.  Þú sendir þá væntanlega mann til að taka kerfið niður, er það ekki?
Ööööhhh...jú, ég myndi gera það.
Svo ætla ég reyndar að gerast viðskiptavinur strax aftur.  Þá verður kerfið sett upp aftur og ég fæ tvo mánuði frítt sem nýr viðskiptavinur, er það ekki?
Ööööhhh...jú...jú...sem nýr viðskiptavinur.
Væri þá ekki gáfulegra að við spörum okkur báðir vesen og tilfærslur, hreyfðum ekkert við kerfinu en ég fengi tvo mánuði fría...eins og sagði í auglýsingunni.
Ööööhhh...andartak.
Biðtónlist í símanum. 
Sæll aftur.  Heyrðu, við leysum þetta þá svona.  Við hreyfum ekkert við kerfinu hjá þér, en þú færð tvo mánuði án þess að borga...eins og sagt var í auglýsingunni.
Þið eruð ágætir.  Þakka þér kærlega fyrir þetta.


Höfundur

Snorri Sturluson
Snorri Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband