Leita í fréttum mbl.is

ÍNN...

...hefur heldur betur stytt mér stundirnar í veikindum síðustu daga.  Það er eitthvað við óformlegheitin sem er óendanlega heillandi.  Sumt varðandi óformlegheitin er reyndar stórkostlega furðulegt. 

Það hefur til dæmis komið í ljós að hægt er að stjórna heilum sjónvarpsþætti án þess að vera í myndverinu.  Án þess að vera á landinu.  Það er algjörlega óborganlegt.

Þegar Ingvi Hrafn er á Florida, hvar haldnar voru undarlega margar ráðstefnur fréttamanna í árdaga Stöðvar 2, stýrir hann þættinum sínum í gegnum fartölvu.  Gesturinn situr grandalaus í myndverinu og spjallar við tæki og tól eins og enginn sé morgundagurinn...

Mynd084

Annað slagið er svo skipt yfir á stjórnandann, sem eys úr skálum visku sinnar fyrir framan netmyndavél af bestu gerð...

Mynd081

Þetta er stórbrotið sjónvarp.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Hummmmm

Ómar Ingi, 7.4.2008 kl. 22:37

2 Smámynd: Jón Birgir Valsson

Engan þarf Ingvi farðann handan hafsins eins og glöggt má sjá...

Jón Birgir Valsson, 8.4.2008 kl. 23:56

3 identicon

úfff... þetta er hreinasti dónaskapur og argasta vitleysa. Það ætti hreinlega að banna þetta !! Ég get ekki einu sinni horft í 2 mínútur án þess að arga upp úr sjálfri mér ; "úfff, slökkva núna... STRAX" Fáránlegt... hver borgar eiginlega ?? Það segir mér enginn að auglýsendur borgi fyrir allt þetta djöfulsins bull !

audur@smaralind.is (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 02:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Snorri Sturluson
Snorri Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband