Leita í fréttum mbl.is

Einu sinni...

...fyrir margt löngu...sá maður ekkert athugavert við þetta myndband.  Það kann að vera að taumlaus aðdáun á laginu hafi fært mann yfir á annað tilverustig og þannig komið í veg fyrir fagurfræðilega réttsýni. 
Ég veit ekki hvort er flottara...þyrlan sem kemur inn til lendingar undir vökulum augum mjög traustverðugra öryggisvarða...eða hlébarðadressið.

Lagið stenst hins vegar tímans tönn og var í raun það eina sem Aldo Nova gerði af viti á sínum tónlistarferli.  Á síðari stigum, eftir að hafa reynt endurkomu undir verndarvæng Jon Bon Jovi, er hann hins vegar dottinn í þann fúla pytt að semja lög fyrir þokulúðra á borð við Celine Dion og Clay Aiken.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Tja Hérna hér

Ómar Ingi, 19.3.2008 kl. 19:25

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Fyndið nokk að fyrir fáum dögum vorum við Einar Dúndurfréttagítaristi að jútjúbast og duttum þá niður á þetta. Hlógum ógurlega mikið. Bendi einnig á Shadows of the Night með Pat Benatar, alger schnilld.

Aldo Nova átti sprett í gamla daga, en þó hann sé að semja lög fyrir miður skemmtilega flytjendur er það ekki alslæmt - sumir samtímamenn hans eru örugglega í byggingarvinnu eða þaðan af verra. Hann er þó allavega að vinna við mússík.

Ingvar Valgeirsson, 19.3.2008 kl. 19:28

3 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Snorri þú ert þá að meina að Bon Jovi sé ekki þokulúður, ég ger þá væntanlega ráð fyrir þér á James Blunt...

Það eru nú ekki margir sem muna eftir hr. Nova ég er að sjá þetta víd í fyrsta skipti síðan í Skonrokki fyrir 25 árum eða svo.

memmrís...

Þórður Helgi Þórðarson, 19.3.2008 kl. 23:22

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þetta er hræðilega skelfilegt allt saman. Held ég sofi ekkert yfir páskana!

Markús frá Djúpalæk, 19.3.2008 kl. 23:35

5 Smámynd: Rúnar Haukur Ingimarsson

Voru þetta ekki snilldartímar........ Nostagíukast

Rúnar Haukur Ingimarsson, 21.3.2008 kl. 11:29

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Bókstaflega agalegt!

Markús frá Djúpalæk, 24.3.2008 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Snorri Sturluson
Snorri Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband