Leita í fréttum mbl.is

Það er mynd...

...af kvikindinu uppi á vegg í ljósvakamusterinu í Efstaleiti.  Hún er reyndar ekki á neitt sérlega áberandi stað, sem vekur furðu og undrun.

Mynd056

Þetta er mynd af mynd, sem er nýmæli.  Upphaflega myndin er tekin fyrir fleiri árum en hollt er að upp að rifja, líklega um það leyti sem maðurinn hringdi og bað um Starway To Heaven með What´s Happening.  Á þessum tíma var tilveran tiltölulega einföld og það þótti bara fínt að vera í vesti!
Annars er alltaf jafn heimilislegt að sitja í turninum á laugardagskveldi, spila það sem hugurinn girnist og þiggja fyrir það þóknun.  Viltu óskalag?

Má ég annars spyrja...hvernig stendur á því að í sjónvarpsþáttum og bíómyndum sem eiga að gerast fyrir tvöþúsund árum eða svo, t.d Tudors og Rome, eru hárgreiðslur og klippingar nýmóðins?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

nú get ég ekki svarað, þar sem ég er illa kunnugum sminki og hárgreiðslum í bíómyndum. en set hér inn smá lista með óskalögum sem mega heyrast í nánustu framtíð. þó ekki fyrr en ég hef tekið undir að þetta tímabil sem þú vitnar í var dásamlegt, enda  var maður yngri og frískari og grublaði meira í tónlist og bara öllum fjandanum.

 talk talk: it´s my life.

bob dylan: i and i

gary numan: allt heila klabbið..

propoganda: eitthvað bara nostalgíutripp

uriah heep: the wizard

eitthvað með japan eða david sylvian. á reyndar tvær plötur með bassaleikaranum mick karn þar sem sylvian syngur aðeins og þær eru báðar snilld. hef þó aldrei heyrt eitt einasta lag af þeim í radíói.

tangerine dream: beach theme

nú, eða bara ac/dc, i just want you með ozzy eða annað léttmeti.....

- en nú er þátturinn þinn að enda á riders of the storm með doors svo þú setur þetta bara næst-

arnar valgeirsson, 7.10.2007 kl. 01:58

2 Smámynd: arnar valgeirsson

djö.. ruglaðist aðeins maður og ekki svo lítið eiginlega.... come on baby light my fire..... eða koddu krakki og gef mér eld (þýð: sveinn guðfinnsson, skólabróðir fyrir norðan og að mörgu leyti snillingur, þó arsenalmaður sé).

arnar valgeirsson, 7.10.2007 kl. 02:00

3 Smámynd: Snorri Sturluson

Sveinn hinn hávaxni...sem ber háralit í stíl við Arsenal-treyjuna?

Snorri Sturluson, 7.10.2007 kl. 12:29

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Sveinn er brauðhærður - með snúða í hárinu.

Jump með Van Halen - Hopp og hí.

Annars má alveg spila eitthvað með Rush, jú og Njúman.

Ingvar Valgeirsson, 7.10.2007 kl. 14:07

5 Smámynd: arnar valgeirsson

sveinn er einmitt fremur hávaxinn já, og í stíl við arsenal treyjuna. svona mitt á milli þessarar venjulegu og afmælisútgáfunnar, sem er svona dumbrauð eins og bjarni fel myndi segja. sveinn er toppmaður og veit lengra en nef sitt nær, sérstaklega þegar rætt er um íþróttir og ekki síst knattspyrnu. hann hatar wenger... og við spiluðum saman með æskunni svalbarðsströnd.

en þýðingin er algjörlega fyrsta flokks.

svo skal ég muna að senda lista fyrir næstu laugardagsvakt, líka muna að hlusta....

arnar valgeirsson, 7.10.2007 kl. 23:36

6 Smámynd: Snorri Sturluson

Margur knattsnillingurinn hefur verið samningsbundinn Æskunni.  Ég "spilaði" þar eitt sumar undir stjórn Þrastar leikfimiskennara og var stoltur af því að tilheyra hinni alíslensku útgáfu Juventus.  Skyldleiki liðanna fólst reyndar alfarið og eingöngu í nafngiftinni...en það var nóg.
Annað merkilegt Eyjafjarðarlið hvers framfarir ég tafði af annáluðum myndarskap var SMÖ...og ef einhver veit hvernig þetta nafn - SMÖ - var tilkomið fær sá hinn sami/sú hin sama ímyndaðan vin að launum.

Snorri Sturluson, 8.10.2007 kl. 00:28

7 identicon

Skriðu, Möðruvalla ogÖxnadalshreppurþað var alltaf gaman að spila á klaufdýramóti UMSE

Kristján Eldjárn Sighvatsson (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 14:16

8 Smámynd: Snorri Sturluson

Stjáni frændi ber genetískri greind fagurt vitni.
Stjáni minn.  Þú hefur nú eignast góðan ímyndaðan vin.  Hann heitir Gústaf.  Ef mér skjöplast ekki verður hann kominn til þín um kvöldmatarleytið.  Ég veit að þið eigið eftir að ná vel saman.

Snorri Sturluson, 8.10.2007 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Snorri Sturluson
Snorri Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband