Leita í fréttum mbl.is

Enn er von!

Þetta er Gene Gnocchi, vinsæll ítalskur sjónvarpsmaður og spaugari.

gnocchi

Gnocchi, sem er 52 ára, er einn stjórnenda Quelli che il calcio, sem er fótboltaættaður þáttur á sjónvarpsstöðinni Rai Due.  Hann biðlaði fyrir skemmstu til stjórnenda liðanna í Serie A um að gefa sér tækifæri til að spila í svo sem eins og fimm mínútur í deildarleik.  Gnocchi hefur löngum haldið því fram að fjölmargir leikmenn í Serie A séu ofmetnir, hreinlega ekki nógu góðir til að spila í einni sterkustu fótboltadeild heims og hann vill meina að hann sé sjálfur jafngóður, ef ekki betri, en stór hluti þessara leikmanna.  Hann bað því um tækifæri til að sanna þessa kenningu og réttlæta gagnrýnina.  Ekki ómerkari menn en Alessandro Del Piero og Marcello Lippi gengu í lið með Gnocchi og Atalanta, Siena og Torinso sýndu málinu áhuga.  Bologna, sem reyndar spilar í Serie B, bættist í hópinn, en svo fór að lokum að blautasti draumur Gnocchis rættist...hann gerði samning við uppáhaldsliðið sitt, Parma. 
27.mars sl. samdi Gene Gnocchi við Parma til loka leiktíðarinnar.  Hann er á launaskrá, fær lágmarkslaun ítalskra atvinnumanna í knattspyrnu sem eru í kringum ein og hálf milljón ísl. króna yfir leiktíðina.  Gnocchi valdi sér treyjunúmerið 52, sem er náttúrulega beintenging við aldur kappans, og knattspyrnunafnið Gnoccao, sem er einhvers konar Brasilíu-paródía.  Reiknað er með að Gnocchi fái að spreyta sig í lokaumferð Serie A, sem fram fer þann 27.maí, en þá á Parma leik gegn Empoli.  Ef svo fer, sem reyndar margt bendir til, að Parma verði á þessum tímapunkti enn að berjast fyrir lífi sínu í Serie A gæti þó orðið breyting á áður auglýstri dagskrá.

Vantar Val eða FH ekki alltaf þokkalegan miðjumann til að spila fimm mínútur eða svo í leik?  Treyjunúmerið yrði talsvert miklu lægra en 52!  Ég væri jafnvel til í að skoða ÍA...ef ég fæ að sleppa ísböðunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Miðað við fréttir af gengi liðsins undanfarið heyrist mér Skaginn þurfa alla þá hjálp sem í boði er.

Egill Harðar (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 15:10

2 Smámynd: Rúnar Haukur Ingimarsson

Ekki skrítið að það gangi ílla á skaganum - menn eru bara í kælingu þar.

Rúnar Haukur Ingimarsson, 22.4.2007 kl. 18:18

3 Smámynd: Sveinn Guðgeir Ásgeirsson

Það mætti leyfa þetta kannski svona einn fjölmiðlamann sem að langar að upplifa drauminn svona til að prófa

Sveinn Guðgeir Ásgeirsson, 24.4.2007 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Snorri Sturluson
Snorri Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband